Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG hefur leik á fimmtudaginn á Joburg mótinu í Suður-Afríku.
Nánari upplýsingar um mótið hér:
Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni, næst sterkustu atvinnumótaröð heims, og eru margir þekktir kylfingar á meðal keppenda. Alls eru 200 keppendur á þessu móti sem er einnig hluti af atvinnumótaröð Suður-Afríku og Asíumótaröðinni.
Keppnisvellirnir eru því tveir en leikið er á Randpark golfsvæðinu. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta mót fer fram á þessum velli.
Heimamaðurinn Louis Oosthuizen er án efa þekktasta nafnið á þessu móti en hann sigraði á Opna breska meistaramótinu árið 2010. Oosthuizen hefur einnig verið í baráttunni um sigurinn á hinum þremur risamótunum og endað í öðru sæti á þeim mótum. Hann hefur alls sigrað á 13 atvinnumótum á ferlinum – þar af átta sinnu á Evrópumótaröðinni.
Birgir Leifur hefur leik kl. 6:55 að íslenskum tíma fimmtudaginn 7. desember.