Birgir Leifur Hafþórsson, úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar er sem stendur efstur á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Leirdalsvelli. Birgir Leifur lék í dag á 66 höggum, 5 undir pari Leirdalsvallar.
Gísli Sveinbergsson, úr Golfklúbbnum Keili er annar á 68 höggum, 3 undir pari. Jafnir i 3-4 sæti koma þeir Þórður Rafn Gissurarsson. úr Golfklúbbi Reykjavíkur og heimamaðurinn Sigmundur Einar Másson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðarbæjar. Hægt er að fylgjast með stöðu mála á golf.is en skor er uppfært á þriggja holu fresti.
1 Birgir Leifur Hafþórsson GKG 66 -5
2 Gísli Sveinbergsson GK 68 -3
3-4 Þórður Rafn Gissurarson GR 71 par
3-4 Sigmundur Einar Másson GKG 71 par
Hægt er að fylgjast með stöðu mála á golf.is en skor er uppfært á þriggja holu fresti.