/

Deildu:

Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Birgir Leifur Hafþórsson hefur dregið sig úr keppni á Volapa mótinu á Áskorendamótaröðinni sem fram fer á Írlandi. Birgir Leifur lék á 81 höggi í gær á fyrsta hringnum og var langt frá sínu besta.

„Ég fékk heiftarlega magakveisu í aðdraganda mótsins og var rúmliggjandi á miðvikudaginn. Mér leið aðeins betur á fimmtudaginn þegar ég vaknaði en gat lítið borðað. Ég tók ákvörðun um að reyna að spila en það var ekki góð ákvörðun. Ég var orkulaus og einbeitingin var ekki til staðar.  Í gærkvöldi fékk ég á ný sömu einkennin og ég mat stöðuna þannig að ég væri ekki að fara gera neitt af viti á golfvellinum í harðri keppni í þessu ástandi. Ég ákvað að vera skynsamur enda eru mörg mót framundan á lokakafla keppnistímabilsins og ég verð að vera klár í þau mót,“ sagði Birgir Leifur við golf.is í morgun.

Birgir Leifur hefur leikið vel á þessu tímabili á Áskorendamótaröðinni og fikrað sig hægt og bítandi upp styrkleikalistann. Meðalskor hans hefur aldrei verið lægra á þessari mótaröð sem er sú næst sterkasta í Evrópu.

Staðan á mótinu: 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ