Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, hefur leik á fimmtudaginn á Áskorendamótaröðinni. Mótaröðin er næst sterkasta mótaröð Evrópu á eftir sjálfri Evrópumótaröðinni.
Mótið heitir Monaghan Irish Challenge og fer fram á Concra Wood vellinum.
Birgir Leifur er í 165. sæti á stigalista Áskorendamótaraðarinnar, og í 257. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar. Á heimslistanum er Birgir Leifur í sæti nr. 671.