Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á öðrumkeppnisdeginum á Áskorendamótinu sem fram fer í Kasakstan. Íslandsmeistarinn lék á 74 höggum eða +2 og er samtals á -1 þegar keppni er hálfnuð. Birgir Leifur var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn og er hann því úr leik. Hann heldur nú til Ítalíu þar sem hann keppir á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina.
Birgir Leifur, sem er sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi, fékk boð um að leika á sterkasta móti tímabilsins á Áskorendamótaröðinni. Mótið fer fram í Kasakstan á Zhailjau Golf Resort og er talsvert ferðalag framundan hjá atvinnukylfingnum úr GKG.
Mótið hefst fimmtudaginn 29. september og verða leiknir fjórir hringir. Verðlaunaféð á þessu mót er það hæsta á tímabilinu á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Birgir Leifur hefur leikið á sex mótum á Áskorendamótaröðinni á þessu tímabili og besti árangur hans er sjötta sæti.
Það er mikill heiður fyrir Birgi Leif að fá boð um að taka þátt á þessu sterka móti en heildarverðlaunaféð er um 60 milljónir kr.
Birgir Leifur er skráður til leiks á 1. stig úrtökumótsins sem fram fer á Bogogno Golf Resort á Ítalíu dagana 4.-7. okt. Það gæti breyst ef hann nær góðum árangri í Kasakstan, en Birgir Leifur er í 96. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar en hér fyrir neðan má sjá árangur hans á tímabilinu.