Birgir Leifur Hafþórsson hefur leik í dag á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. Alls er keppt á fjórum keppnisvöllum samtímis á 2. stiginu á Spáni og leikur Birgir á Las Colinas vellinum í Alicante. Birgir þurfti ekki að fara í gegnum 1. stig úrtökumótsins vegna stöðu sinnar á stigalista Áskorendamótaraðar Evrópu.
Birgir, sem er sexfaldur Íslandsmeistari í golfi, hefur leik kl. 8.50 að íslenskum tíma en alls eru 72 kylfingar sem keppa á Las Colinas vellinum. Ekki er búið að gefa það út nákvæmlega hve margir kylfingar komast áfram af hverjum velli fyrir sig á 2. stigi úrtökumótsins en gera má ráð fyrir að 15 efstu á hverjum velli komist inn á lokaúrtökumótið.
Evrópmótaröðin er næst sterkasta atvinnumannamótaröð heims á eftir PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Birgir Leifur, sem er 39 ára gamall, er eini íslenski karl kylfingurinn sem hefur náð að tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni.
Það gerði hann árið 2006 og lék m.a. á 18 mótum á Evrópumótaröðinni tímabilið 2006–2007. Hann tryggði sér keppnisrétt á ný á Evrópumótaröðinni 2007 með því að komast í gegnum lokaúrtökumótið á Spáni. Alls hefur hann leikið á 58 mótum á Evrópumótaröðinni á ferlinum.
Besta meðalskorið frá upphafi
Á þessu ári tók Birgir Leifur þátt á 9 mótum á Áskorendamótaröðinni, sem er sú næst sterkasta í Evrópu.
Meðalskor hans á þeim mótum var 70,75 högg sem er besta meðalskor Birgis á þeirri mótaröð frá upphafi. Alls hefur Birgir leikið á 106 mótum á Áskorendamótaröðinni frá árinu 1999 og árangur hans á stigalistanum er sá þriðji besti frá upphafi – 92. sæti, og er hann búinn að tryggja sér keppnisrétt á um 10 mótum á næsta tímabili.
Fyrsta stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina fór fram á átta mismunandi keppnisvöllum. Um 900 kylfingar tóku þátt á þessum keppnisstöðum og komast um 25% þeirra áfram á annað stig úrtökumótsins eða rétt um 180 kylfingar.
Axel Bóasson, Ólafur Björn Loftsson og Þórður Rafn Gissurarson féllu allir úr leik á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í haust.
Lokaúrtökumótið, sem er jafnframt 3. stig úrtökumótsins fer fram 14.–19. nóvember á Spáni. Þar mæta ekki aðeins til leiks þeir sem hafa náð í gegn á fyrstu tveimur stigum úrtökumótsins.
Þeir kylfingar sem náðu ekki að tryggja sér áframhaldandi keppnisrétt á tveimur sterkustu mótaröðum Evrópu, Áskorendamótaröðinni og Evrópumótaröðinni, fá tækifæri til þess að sanna sig að nýju á lokaúrtökumótinu. Þar eru 156 keppendur, leiknir eru sex hringir þar sem 25 efstu fá keppnisrétt á meðal þeirra bestu á næsta keppnistímabili á Evrópumótaröðinni.
Aðeins 3% komast alla leið
Til þess að setja hlutina í samhengi má nefna eftirfarandi. Aðeins tveir kylfingar af alls 924 sem hófu leik á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í fyrra komust í gegnum lokaúrtökumótið og tryggðu sér keppnisrétt á sjálfri Evrópumótaröðinni. Það voru þeir Tom Murray and Daniel Woltman. Alls komust 27 kylfingar af lokaúrtökumótinu inn á Evrópumótaröðina sem er rétt um 3% af þeim sem reyndu fyrir sér í þessari erfiðu keppni.
[quote_box_left]Saga Birgis á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina er áhugaverð. Hann er að leika í 17. sinn frá árinu 1997 á úrtökumótinu. Alls hefur hann komist 11 sinnum inn á lokaúrtökumótið (3. stigið) og alls 14. sinnum hefur hann leikið á 2. stiginu og aðeins þrívegis hefur honum mistekist að komast ekki í gegnum 2. stig úrtökumótsins. [/quote_box_left]