Birgir Leifur Hafþórsson, úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar heldur forystu á Íslandsmótinu í golfi sem nú er hálfnað á Leirdalsvelli. Birgir Leifur er með fimm högga forystu eftir hringinn sem hann lék á 68 höggum hann fékk sex fugla, 1 skolla og 1 skramba+2 og 9 pör. Annar er Sigmundur Einar Másson, úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, hann lék í dag á 69 höggum og er á 3 höggum undir pari. Í þriðja sæti er Þórður Rafn Gissurarson, úr Golfklúbbi Reykjavíkur hann lék í dag á 69 höggum og er samtals á 2 höggum undir pari.
1. sæti Birgir Leifur Hafþórsson GKG 66/68 = 134 -8
2. sæti Sigmundur Einar Másson GKG 71/67 = 138 -4
3. sæti Þórður Rafn Gissurarson GR 71/69 = 140 -2