Birgir Leifur Hafþórsson er úr leik á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. Íslandsmeistarinn 2016 lék lokahringinn á -1 eða 71 höggi en það dugði ekki til. Samtals var hann á +2 (70-76-73-71) en 25 efstu kylfingarnir komust áfram. Birgir endaði í 39. sæti en mótið fór fram á Ítalíu.
Þetta var í 18. sinn sem Birgir Leifur tekur þátt á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina og þetta er í fyrsta sinn sem hann nær ekki að komast inn á 2. stig úrtökumótsins.