Bjarki Pétursson úr GKB hefur leik í dag á áhugamannamóti sem er í efsta styrkleikaflokki á heimsvísu. Bjarki stundar nám í Kent háskólanum í Bandaríkjunum samhliða því að keppa fyrir skólann.
Mótið heitir South Beach International Amateur og er keppt á Normandy Shores vellinum.
Eins og áður segir er mótið í A-flokki á heimslista áhugakylfinga og eru því margir af bestu kylfingum heims í flokki áhugamanna á þessu móti.