Site icon Golfsamband Íslands

Bjarki og Axel keppa á Arlandastad Trophy á Nordic Golf League í Svíþjóð

Tveir keppendur frá Íslandi taka þátt á Arlandastad Trophy sem fram fer á Arlandastad vellinum í Svíþjóð dagana 5.-7. júlí 2023. Þeir eru Bjarki Pétursson, GKG og Axel Bóasson, GK.

Mótið hefst miðvikudaginn 5. júlí og eru leiknir þrír keppnishringir á þremur dögum.

Mótið er hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni. – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá Arlandstad mótinu í Svíþjóð.

Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Á stigalistanum er Axel í 7. sæti en hann hefur leikið á alls ellefu mótum á þessu tímabili, Bjarki hefur leikið á níu mótum og er í 24. sæti á stigalistanum.

Exit mobile version