Bjarki Pétursson, úr Golfklúbbi Borgarness, náði frábærum árangri á gríðarlega sterku áhugamannamóti sem fram fór í Berlín í Þýskalandi.
Bjarki, sem keppir með Berlin Wannsee liðinu í þýsku úrvaldeildinni, gerði sér lítið fyrir og lék hringina fjóra á 20 höggum undir pari. Hann sigraði með þriggja högga mun en leikið var á heimavelli Bjarka í höfuðborginni Berlín.
Frá þessu er greint á kylfingur.is og má lesa nánar um árangur Bjarka þar.