Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, fór fram þann 1. ágúst. Mótið sem haldið var í samstarfi við STEFNI hf., fór fram á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 1. ágúst. Þetta var í 26. sinn sem mótið fer fram.
Venju samkvæmt var nokkrum af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og í ár var leikið í þágu stuðningsfélagsins Einstök börn. Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var stofnað 13. mars 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú hefur félagið stækkað ört og eru hátt í 500 fjölskyldur í félaginu.
Fyrirkomulagið í Einvíginu var þannig að fyrstu tvær holurnar í einvíginu voru leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það var farið í hið hefðbundna “shoot-out” fyrir þá sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut.
Það er sjóðastýringarfélagið STEFNIR sem var styrktaraðili Einvígisins á Nesinu í ár. Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Magnús Örn Guðmundsson frá STEFNI, afhentu Guðrúnu Helgu Harðadóttur, framkvæmdarstjóra Einstakra barna ávísun að upphæð kr. 1.000.000 í mótslok.
Sigurvegari mótsins var hinn átján ára gamli Bjarni Þór Lúðvíksson, nýkrýndur klúbbmeistari Nesklúbbsins, stóð uppi sem sigurvegari eftir æsispennandi lokaholu þar sem hann sigraði Gunnlaug Árna Sveinsson úr GKG.
Úrslit í Einvíginu 2022 urðu eftirfarandi:
- sæti: Bjarni Þór Lúðvíksson
- sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson
- sæti: Aron Snær Júlíusson
- sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir
- sæti: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
- sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir
- sæti: Hlynur Bergsson
- sæti: Birgir Leifur Hafþórsson
- sæti: Guðrún Brá Björgvinsdóttir
- sæti: Magnús Lárusson
Ár | Sigurvegarar frá upphafi: |
1997 | Björgvin Þorsteinsson |
1998 | Ólöf María Jónsdóttir |
1999 | Vilhjálmur Ingibergsson |
2000 | Kristinn Árnason |
2001 | Björgvin Sigurbergsson |
2002 | Ólafur Már Sigurðsson |
2003 | Ragnhildur Sigurðardóttir |
2004 | Magnús Lárusson |
2005 | Magnús Lárusson |
2006 | Magnús Lárusson |
2007 | Sigurpáll Geir Sveinsson |
2008 | Heiðar Davíð Bragason |
2009 | Björgvin Sigurbergsson |
2010 | Birgir Leifur Hafþórsson |
2011 | Nökkvi Gunnarsson |
2012 | Þórður Rafn Gissurarson |
2013 | Birgir Leifur Hafþórsson |
2014 | Kristján Þór Einarsson |
2015 | Aron Snær Júlíusson |
2016 | Oddur Óli Jónasson |
2017 | Kristján Þór Einarsson |
2018 | Ragnhildur Sigurðardóttir |
2019 | Guðmundur Ágúst Kristjánsson |
2020 | Haraldur Franklín Magnús |
2021 | Guðmundur Ágúst Kristjánsson |
2022 | Bjarni Þór Lúðvíksson |