Bjarni Hannesson vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Keili var valinn vallarstjóri ársins í flokki golfvalla. Greint var frá kjörinu á aðalfundi samtaks íþrótta- og vallarstarfsmanna sem fram fór nýverið. Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, var valinn vallarstjóri ársins í flokki knattspyrnuvalla.
Bjarni Þór hefur frá árinu 2012 starfað sem vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Keili. Völlurinn hefur ávallt verið í fyrsta flokks ástandi og á síðasta ári voru þrjár nýjar holur teknar í notkun sem þykja vel heppnaðar.
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, var valinn vallarstjóri ársins í flokki knattspyrnuvalla en þetta er í fjórða skiptið sem Kristinn hlýtur þessi verðlaun.