Frá Hólmsvelli í Leiru - Bergvíkin.
Auglýsing

Golfsamtök fatlaðra á Íslandi í samstarfi við GSÍ, ÍF, GS og EDGA halda boðsmót í dag fyrir kylfinga með fötlun í tengslum við Íslandsmótið í golfi 2024.

Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt mót fer fram en keppnin í dag fer fram á Hólmsvelli í Leiru og eru alls átta keppendur.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Markmið mótsins er að efla mótahald innanlands fyrir kylfinga með fötlun og auka á sýnileika starfsemi GSFÍ.

Samtökin hafa starfrækt reglubundnar æfingar í samstarfi við nokkra golfklúbba undanfarin ár og þekkja til kylfinga sem þar hafa sótt starfið.

Markmiðið er að mótið verðið haldið árlega þar sem fremstu leikmönnum landsins er boðin þátttaka.

Hér er hlekkur með ýmsum upplýsingum um golf fyrir kylfinga með fötlun.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ