/

Deildu:

Frá verðlaunaafhendingu á Einvíginu á Nesinu 2024. Mynd/NK
Auglýsing

Einvígið á Nesinu (Shoot out) góðgerðarmótið fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri mánudaginn 5. ágúst.

Þetta var í 28. skiptið sem mótið er haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni, nú Umhyggju, félags sem vinnur með hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra að leiðarljósi.

Sigurvegari mótsins er Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur eftir að hann sigraði Kjartan Óskar Guðmundsson á 9. braut.

Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins.

Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhentu þau Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Jóhann Möller frá Arion banki , sem afhentu Chien Tai, stjórnarmeðlim Umhyggju ávísun að upphæð kr. 1.000.000.-

Úrslit í Einvíginu 2024 urðu eftirfarandi:

1.sæti: Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
2.sæti: Kjartan Óskar Guðmundsson, NK
3.sæti: Aron Emil Gunnarsson, GOS
4.sæti: Logi Sigurðsson, GS
5.sæti: Aron Snær Júlíusson, GKG
6.sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
7.sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
8.sæti: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR
9.sæti: Karlotta Einarsdóttir, NK
10.sæti: Böðvar Bragi Pálsson, GR

Sigurvegarar frá upphafi:

1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2014 Kristján Þór Einarsson
2015 Aron Snær Júlíusson
2016 Oddur Óli Jónasson
2017 Kristján Þór Einarsson
2018 Ragnhildur Sigurðardóttir
2019 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020 Haraldur Franklín Magnús
2021 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2022 Bjarni Þór Lúðvíksson
2023 Birgir Björn Magnússon
2024 Dagbjartur Sigurbrandsson

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ