/

Deildu:

Derrick Moore PGA kennari ársins 2017.
Auglýsing

Aðalfundur PGA á Íslandi fór fram laugardaginn 3. febrúar í íþróttamiðstöð GKG og voru 25 félagsmenn mættir til fundarins. Að venju var glæsileg dagskrá í kringum fundinn.

Tómas Aðalsteinsson hóf daginn með fyrirlestri um hugarþjálfun kylfinga og eftir aðalfundinn fóru fram umræður um afreksgolf á hæsta stigi. Að auki fór fram hin árlega púttkeppni og að lokum snæddu félagsmenn saman um kvöldið.

Á sjálfum aðalfundinum fór Karl Ómar Karlsson, formaður PGA á Íslandi, yfir skýrslu stjórnar. Ólafur Björn Loftsson, framkvæmdastjóri félagsins, fór yfir reikninga félagsins og kynnti fjárhagsáætlun ársins.

Áhugaverðar umræður fóru fram um hin ýmis mál tengd starfseminni.

Derrick Moore, Hulda Birna Baldursdóttir, Sigurpáll Geir Sveinsson og Snorri Páll Ólafsson hlutu kosningu meðstjórnanda til tveggja ára.

Birgir Leifur Hafþórsson, Karl Ómar Karlsson, Nökkvi Gunnarsson og Sturla Höskuldsson voru kosnir fyrir ári síðan til tveggja ára.

Agnar Már Jónsson og Helgi Anton Eiríksson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Hlynur Geir Hjartarson hafði dregið sig úr stjórn snemma á síðasta ári vegna anna.

Derrick Moore var kjörinn PGA kennari ársins og er þetta þriðja árið í röð sem hann fær þessa viðurkenningu, og í fjórða sinn alls. Þetta er í ellefta sinn sem PGA kennari ársins er kjörinn og hafa alls átta kennara fengið titilinn.

Ólafur Björn Loftsson framkvæmdastjóri PGA og Axel Bóasson PGA meistari ársins 2017.

Axel Bóasson úr Keili er PGA meistari ársins 2017.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir kylfingur ársins 2017 hjá PGA.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR var kjörinn kylfingur ársins hjá PGA.

PGA kennarar ársins frá upphafi:

2007 Árni Jónsson
2008 Staffan Johannson
2009 Arnar Már Ólafsson
2010 Brynjar Eldon Geirsson
2011 Derrick Moore
2012 Sigurpáll Geir Sveinsson
2013 Magnús Birgisson
2014 Heiðar Davíð Bragason
2015 Derrick Moore
2016 Derrick Moore
2017 Derrick Moore

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ