Egils-Gullmótið 2016 Eimskipsmótaröðin.
Egils-Gullmótið 2016 Eimskipsmótaröðin.
Auglýsing

Að fengnu áliti og ráðgjöf frá Veðurstofu Íslands er það mat mótstjórnar Egils Gull mótsins á Eimskipsmótaröðinni sem fram fer á Garðavelli að fella niður keppnisdaga 2 og 3.

Veðurspá fyrir laugardaginn 18. er ekki ákjósanleg til golfleiks og því síður veðurspá fyrir sunnudaginn. Það hefur því verið ákveðið að láta úrslit dagsins í dag gilda.

Úrslit

Karlaflokkur:
1. Axel Bóasson, GK 68 högg (-4)
2. Aron Snær Júlíusson, GKG 70 högg (-2)
3.-4. Andri Már Óskarsson, GHR 71 högg (-1)
3.-4. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR 71 (-1)

Kvennaflokkur:
1. -2. Arna Rún Kristjánsdóttir, GM 76 högg (+4)
1.-2. Guðrún B. Björgvinsdóttir, GK 76 högg(+4)
3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 78 högg (+6)

Stigakeppni klúbba:

Karlaflokkur:
1. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
2. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
3.-4. Golfklúbburinn Keilir
3.-4. Golfklúbbur Akureyrar

Kvennaflokkur:
1. Golfklúbburinn Keilir
2. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
3. Golfklúbbur Reykjavíkur

1. keppnisdagur –

Margir af bestu kylfingum landsins eru skráðir til leiks á Egil-Gull mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem fram fer dagana 18.-20. maí. Mótið fer fram á Garðavelli á Akranesi. Mótið er það þriðja í röðinni á keppnistímabilinu 2017-2018 á Eimskipsmótaröðinni. Keppendur sem skráðir eru til leiks eru tæplega 90.

Íslandsmeistarinn Axel Bóasson úr Keili byrjaði vel á fyrsta keppnisdeginum. Hann lék á 68 höggum eða 4 höggum undir pari vallar. Hann er með tveggja högga forskot á Aron Snæ Júlíusson úr GKG. Þar á eftir koma þeir Andri Már Óskarsson úr GHR og Dagbjartur Sigurbrandsson GR.

1. Axel Bóasson, GK 68 högg (-4)
2. Aron Snær Júlíusson, GKG 70 högg (-2)
3.-4. Andri Már Óskarsson, GHR 71 högg (-1)
3.-4. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR 71 (-1)
5.-10. Stefán Þór Bogason, GR 72 högg (par)
5.-10. Sverrir Haraldsson, GM 72 högg (par)
5.-10. Arnór Snær Guðmundsson, GHD 72 högg (par)
5.-10. Tumi Hrafn Kúld, GA 72 högg (par)
5.-10. Kristján Þór Einarsson, GM 72 högg 72 (par)

Arna Rún Kristjánsdóttir úr GM og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK voru efstar og jafnar eftir fyrsta keppnisdaginn á Egils Gullmótinu á Eimskipsmótaröðinni. Þær léku báðar á 76 höggum eða +4. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er í þriðja sæti á +6 en hún er á heimavelli á Garðavelli á Akranesi á þessu móti. Egils Gull mótið er þriðja mótið á tímabilinu 2017-2018 á Eimskipsmótaröðinni.

1. -2. Arna Rún Kristjánsdóttir, GM 76 högg (+4)
1.-2.  Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 76 högg (+4)
3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 78 högg (+6)
4. Amanda Guðrún Bjarnadóttir, GHD 80 högg (+8)
5. Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA 81 högg (+9)
6.-10. Ásdís Valtýsdóttir, GR 82 högg (+10)
6.-10. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS 82 högg (+10)
6.-10.  Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK 82 högg (+10)
6.-10.  Saga Traustadóttir, GR 82 högg (+10)
6.-10. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 82 (+10)

Smelltu hér til að fylgjast með skori keppenda. 

 


 

Alls eru 17 keppendur skráðir til leiks í kvennaflokki og ber þar hæst að atvinnukylfingarnir Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili eru á meðal keppenda.

Valdís er á heimavelli á þessu móti en hún fagnaði Íslandsmeistaratitlinum árið 2017. Valdís leikur á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, LET Evrópumótaröðinni, og Guðrún Brá keppir á LET Access mótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu. Valdís og Þórdís Geirsdóttir úr GK eru einu keppendurnir í kvennaflokki sem hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn í golfi.

Meðalforgjöfin í kvennaflokknum er 2,5. Valdís Þóra og Guðrún Brá eru með lægstu forgjöfina eða -3,1, Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR kemur þar næst í röðinni með -1,7.

GR er með flesta keppendur í kvennaflokki eða sex alls, Keilir kemur þar á eftir með fjóra keppendur. Keppendur í kvennaflokki koma samtals úr átta golfklúbbum víðsvegar af landinu.

GR – 6
GK – 4
GM – 2
GA – 1
GHD -1
GKG -1
GL -1
GOS -1

Í karlaflokki eru 70 keppendur skráðir til leiks. Fjórir þeirra hafa fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi, þeir eru Axel Bóasson úr Keili, Ólafur Björn Loftsson úr GKG, Sigmundur Einar Másson úr GKG og Kristján Þór Einarsson úr GM.

Axel og Ólafur Björn eru atvinnukylfingar, en Axel keppir á Áskorendamótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu. Ólafur keppir á Nordic Tour mótaröðinni sem er í þriðja styrkleikaflokki í Evrópu.

Meðalforgjöfin í karlaflokki er 1,9 og eru alls 24 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf. Axel Bóasson er með lægstu forgjöfina eða -3,5. Þar á eftir kemur Aron Snær Júlíusson úr GKG með -3, Kristján Þór er með -2 líkt og Björn Óskar Guðjónsson úr GM.

Alls eru keppendur frá 17 klúbbum víðsvegar af landinu á meðal keppenda á Egils-Gull mótinu. Flestir frá GR eða 16, og GKG er með 15 keppendur, GM er með 10, GK 7 líkt og GA.

NK -1
GVS -2
GV -1
GSE -1
GR – 16
GOS – 2
GÖ – 1
GM – 10
GKG – 15
GK – 7
GÍ – 1
GHR – 1
GHH – 1
GHD – 1
GFH -1
GEY – 1
GA -7

Keppendur í kvennaflokki í stafrófsröð:

Amanda Guðrún Bjarnadóttir GHD 3.4
Andrea Ýr Ásmundsdóttir GA 3.8
Anna Sólveig Snorradóttir GK 1.8
Arna Rún Kristjánsdóttir GM 5.3
Ásdís Valtýsdóttir GR 7.1
Eva Karen Björnsdóttir GR 3
Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR 6.2
Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK -3.1
Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 3.2
Heiða Guðnadóttir GM 3.1
Heiðrún Anna Hlynsdóttir GOS 5
Hulda Clara Gestsdóttir GKG 1.9
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir GR 3.9
Ragnhildur Kristinsdóttir GR -1.7
Saga Traustadóttir GR 0.5
Valdís Þóra Jónsdóttir GL -3.1
Þórdís Geirsdóttir GK 2.7

 

Keppendur í karlaflokki í stafrófsröð:

Adam Örn Stefánsson GVS 4.2
Andri Már Guðmundsson GM 3.3
Andri Már Óskarsson GHR -0.7
Arnór Ingi Finnbjörnsson GR -0.4
Arnór Snær Guðmundsson GHD -0.1
Aron Emil Gunnarsson GOS 4.0
Aron Skúli Ingason GM 2.6
Aron Snær Júlíusson GKG -3.0
Axel Bóasson GK -3.5
Bjarni Þór Lúðvíksson GR 5.1
Björn Óskar Guðjónsson GM -2.0
Böðvar Bragi Pálsson GR 1.9
Breki Gunnarsson Arndal GKG 5.3
Dagbjartur Sigurbrandsson GR -0.8
Dagur Fannar Ólafsson GKG 4.8
Daníel Hilmarsson GKG 3.0
Daníel Ísak Steinarsson GK 0.9
Egill Ragnar Gunnarsson GKG -0.6
Einar Bjarni Helgason GFH 3.7
Einar Snær Ásbjörnsson GR 1.7
Elvar Már Kristinsson GR 3.5
Eyþór Hrafnar Ketilsson GA 1.5
Guðmundur Arason GR 2.5
Gunnar Blöndahl Guðmundsson GKG 4.3
Hákon Harðarson GR 1.0
Hákon Örn Magnússon GR -0.5
Halldór Fannar Halldórsson GR 5.0
Haukur Már Ólafsson GKG 2.1
Helgi Snær Björgvinsson GK 2.3
Henning Darri Þórðarson GK -0.6
Hlynur Bergsson GKG -0.9
Hrafn Guðlaugsson GSE 0.3
Ingvar Andri Magnússon GKG -0.5
Jóhann Gunnar Kristinsson GR 4.3
Jóhann Sigurðsson GVS 4.8
Jón Gunnarsson GKG 3.8
Jón Hilmar Kristjánsson GM 4.0
Kjartan Óskar Karitasarson NK 4.5
Kristján Benedikt Sveinsson GA 0.7
Kristján Þór Einarsson GM -2.0
Kristófer Karl Karlsson GM 0.3
Kristófer Orri Þórðarson GKG 0.3
Lárus Garðar Long GV 3.1
Lárus Ingi Antonsson GA 3.5
Magnús Bjarnason GEY 5.0
Magnús Friðrik Helgason GKG 4.7
Ólafur Björn Loftsson GKG -1.8
Óli Kristján Benediktsson GHH 4.7
Orri Bergmann Valtýsson GK 4.3
Örvar Samúelsson GA 1.7
Peter Henry Bronson GM 0.0
Pétur Sigurdór Pálsson GOS 4.4
Ragnar Már Ríkarðsson GM 2.0
Sigmundur Einar Másson GKG 0.9
Sigurður Arnar Garðarsson GKG -0.2
Sigurður Bjarki Blumenstein GR 0.8
Sigurður Már Þórhallsson GR 3.6
Stefán Óli Magnússon 4.7
Stefán Þór Bogason GR -1.4
Stefán Þór Hallgrímsson GM 4.5
Sturla Höskuldsson GA 4.0
Sveinbjörn Guðmundsson GK 5.3
Sverrir Haraldsson GM 1.5
Theodór Emil Karlsson GM -0.3
Tómas Eiríksson Hjaltested GR 3.0
Tumi Hrafn Kúld GA -0.3
Víðir Steinar Tómasson GA 1.7
Vikar Jónasson GK -1.5
Viktor Ingi Einarsson GR -0.6
Þórir Baldvin Björgvinsson 3.2

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ