Guðrún Brá og Berglind.
Auglýsing

Aron Snær Júlíusson úr GKG og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK sigruðu á Bose mótinu sem var fyrsta mótið á Eimskipsmótaröðinni 2017-2018. Aron Snær setti jafnframt nýtt vallarmet á Jaðarsvelli í dag þegar hann lék á 64 höggum eða -7. Guðrún Brá lék á +3 samtals og sigraði með fjögurra högga mun. Þetta er annað mótið í röð sem Aron Snær vinnur á Eimskipsmótaröðinni en hann sigraði einnig á Securitasmótinu þar sem keppt var um GR-bikarinn á lokamóti Eimskipsmótaraðarinnar í ágúst.

1. Aron Snær Júlíusson GKG (70-69-64) 203 högg -10
2.-6. Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR (75-70-74) 219 högg +6
2.-6. Hlynur Bergsson, GKG (75-73-71) 219 högg +6
2.-6. Andri Már Óskarsson, GHR (71-74-74) 219 högg +6
2.-6. Björgvin Sigurbergsson, GK (74-71-74) 219 högg +6
2.-6. Kristján Benedikt Sveinsson GA 2 F 35 37 72 1 72 75 72 219 6
7.-8. Tumi Hrafn Kúld, GA (73-73-74) 220 högg +7
7.-8. Kristján Þór Einarsson, GM (74-74-72) 220 högg +7
Frá vinstri: Patrekur Nordiquist, Andri Már Óskarsson, Aron Snær Júlíusson, Hlynur Bergsson, Björgvin Sigurbergsson og Kristján Benedikt Sveinsson.

Frá vinstri: Saga Traustadóttir, Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Anna Sólveig Snorradóttir.

1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK (69-71-76) 216 högg +3
2. Anna Sólveig Snorradóttir, GK (72-75-73) 220 högg +7
3. Saga Traustadóttir, GR (71-75-76) 222 högg +9
4. Heiða Guðnadóttir, GM (81-75-77) 233 högg +20
5. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG (76-80-83) 239 högg +26

Aron Snær Júlíusson, sigurvegari í karlaflokki á nýju glæsilegu vallarmeti á Jaðarsvelli. Lék hringina þrjá á -10 samtals og setti vallarmet í dag á 64 höggum eða -7.

Skor keppenda var uppfært reglulega og er hægt að skoða það hér:

Bose-mótið var fyrsta mótið á keppnistímabilinu 2017-2018 en líkt og á nýliðnu tímabili verða mótin alls átta og fara tvö mót fram september 2017. Honda-Classic mótið fer síðan fram 16.-17. september á Urriðavelli.


Keppnistímabilið hefst síðan að nýju eftir vetrarhlé í maí árið 2018 fara sex mót fram á árinu 2018.

Jaðarsvöllur á Akureyri hefur sjaldan verið í betra ástandi og er útlit fyrir spennandi keppni á mótaröð þeirra bestu dagana 2.-3. september. Leiknar verða 54 holur á tveimur keppnisdögum, 36 holur verða leiknar laugardaginn 2. september og 18 holur sunnudaginn 3. september.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ