Valdís Þóra jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni og Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur eru efstar og jafnar eftir fyrsta hringinn af fjórum á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Leirdalsvelli. Valdís Þóra og Ragnhildur spiluðu báðar á 75 höggum í dag eða á 4 yfir pari Leirdalsvallar. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Stefánía Kristín Valgeirsdóttir, úr Golfklúbbi Akureyrar er jafnar í 3-4 sæti, þær spiluðu í dag á 76 höggum.
Hægt er að fylgjast með skori keppenda á golf.is en það er uppfært á 3 holu fresti.
1-2 sæti Valdís Þóra Jónsdóttir GL 75 +4
1-2 sæti Ragnhildur Kristinsdóttir GR 75 +4
3-4 sæti Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR 76 +5
3-4 sæti Stefanía Kristín Valgeirsdóttir GA 76 +5