Ólafía Þórunn Kristinsdóttir sem leiðir í kvennaflokki á Íslandsmótið í golfi var ánægð með stöðu mála enda með tveggja högga forystu fyrir loka hringinn. Ég var að slá vel í dag en það var eitthvað sambandsleysi í pútternum hjá mér í dag sagði hún í léttu spjalli við áhorfendur eftir hringinn í dag og setti stefnuna á æfingaflötina. Aðspurð um leikskipulagið fyrir lokahringinn sagði Guðrún Brá Björgvinsdóttir planið væri að forðast ragnar ákvarðanir enda er hún sátt við leik sinn að mestu.
Lokaholl kvenna hefur leik kl 11:20 og má búast við fjölmenni enda eftirsóttasti titill ársins í boði. Birgir Leifur Hafþórsson hefur vænt forskot í karlaflokki en það kemur ekki í veg fyrir það að hann mun mæta grimmur til leiks líkt og aðrir keppendur.
Kvennaflokkur:
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR +7
Valdís Þóra Jónsdóttir, GL +9
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +10
Karlaflokkur:
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG -12
Axel Bóasson, GK -5
Þórður Rafn Gissurarson, GR -5