Auglýsing

Eins og áður hefur komið fram náðu íslensku kylfingarnir þrír frábærum árangri á Heimsleikum Special Olympics. Keppnin fór fram í Abu Dhabi.

Elín Fanney Ólafsdóttir, Ásmundur Þór Ásmundsson og Pálmi Þór Pálmason kepptu fyrir Íslands hönd og stóðu sig með prýði eins og áður segir.

Ásmundur Þór gerði sér lítið fyrir og nældi í silfurverðlaun. Elín Fanney og Pálmi Þór voru hársbreidd frá því að komast á verðlaunapall. Sannarlega glæsilegur árangur og má lesa um það í þessari frétt á golf.is.

Elín, Ásmundur og Pálmi fengu góðan styrk úr Minningarsjóði Harðar Barðdal. Sjóðurinn styrkti hvern keppanda um 150.000 kr.

Minningarsjóður Harðar Barðdal til styrktar fötluðum kylfingum var stofnaður sumarið 2011 til þess að heiðra minningu Harðar Barðdal, frumkvöðuls og afreksíþróttamanns úr röðum fatlaðra.

Hugmyndin að stofnun sjóðsins kviknaði hjá dætrum Harðar, Jóhönnu, Sesselju og Fanney, sumarið 2010, tæplega ári eftir lát föður þeirra.

Sjóðurinn var síðan stofnaður um mitt ár 2011 og hófst þá söfnun í sjóðinn sem ætlaður er að til að styðja við starfsemi fatlaðra kylfinga og verkefni sem þeir taka þátt í.

Markmið sjóðsins er að halda á lofti þeim kyndli er Hörður tendraði með starfi sínu í þágu fatlaðra íþróttamanna almennt og í þágu fatlaðra kylfinga sérstaklega.

Sjóðurinn styrkir mismunandi verkefni, hvort heldur er einstaklinga, þjálfara eða verkefni tengd útbreiðslumálum á landsvísu, að því gefnu að þau verkefni samræmist reglum sjóðsins að öðru leyti.

Hörður Barðdal.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ