Auglýsing

Nú eru fyrirlestrar frá ráðstefnunni “Eru íþróttir leikvangur ofbeldis? Vinnum gegn því” aðgengilegir á heimasíðu RIG, á facebook síðu viðburðarins og á youtubesíðu RIG.

Ráðstefnan var vel sótt og allir fyrirlestrarnir þarft innlegg í umræðu um ofbeldi í íþróttum.

Við viljum benda á erindi Håvard B. Øvregård, ráðgjafa, sem stýrir vinnu gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi fyrir norska Íþrótta og Ólympíusambandið. Erindið hans er sérstaklega áhugavert fyrir stjórnendur í íþróttahreyfingunni.

Dr. Sandra Kirby var einnig með tvo áhugaverða fyrirlestra. Annar fyrirlesturinn fjallaði almennt um ofbeldi í íþróttum og kom hún inn á nýjust rannsóknir og tölfræði í þessum málaflokki. Hinn fyrirlesturinn fjallaði um íþróttafólk sem er í aukinni hættu á því að verða fyrir ofbeldi (fatlað íþróttafólk, afreksíþróttafólk sem eru börn, hinsegin íþróttafólk).

Við hvetjum þig til að kynna þér allt efnið og nýta það í leik og starfi. Endilega deilið myndböndunum og skapið umfjöllun um ofbeldi í íþróttum í kring um ykkur í íþróttahreyfingunni.

Ef þú vilt koma einhverjum skilaboðum til skila eða ef einhverjar spurningar brenna á þér, vinsamlegast hafðu samband við Jónu Hildi Bjarnadóttur, Verkefnastjóra jafnréttismála hjá ÍBR, á netfangið jona@ibr.is 

Fyrirlestrana má sjá hér fyrir neðan.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ