Golfsamband Íslands

Evrópumót karlalandsliða 2022 – staða og úrslit

Aron Emil Gunnarsson, Daníel Ísak Steinarsson, Kristófer Orri Þórðarson, Hákon Örn Magnússon, Hlynur Bergsson, Sigurður Bjarki Blumenstein, Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri GSÍ og landsliðsþjálfari. Mynd/seth@golf.is

Það er mikið um að vera í hjá íslenskum landsliðskylfingum í þessari viku. Evrópumót landsliða í ýmsum aldursflokkum, alls sex mót, fara fram á fimm mismunandi keppnisstöðum – og þar á meðal á Urriðavelli á Íslandi þar sem að EM stúlkna fer fram 5.-9. Júlí.
Alls eru 528 keppendur á EM mótunum, þar sem að 29 þjóðir senda alls 88 lið til keppni.

Evrópumeistarar verða krýndir á fjórum keppnisstöðum um næstu helgi, EM stúlkna, EM drengja, EM kvenna og EM karla. Að auki er keppt á tveimur stöðum í 2. deild karla – og 2. deild pilta.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur þar sem að fimm lægstu skorin hjá hverju liði telja. Liðunum er raðað upp í riðla eftir árangri í höggleiknum, átta efstu liðin leika í holukeppni í A-riðli um Evrópumeistartitilinn og önnur lið leika um sætin þar fyrir neðan. Í B-riðli er leikið um sæti 9.-16 og í C-riðli um sætin þar fyrir neðan.

Í holukeppninni eru leiknar tvær umferðir á dag. Í fyrri umferðinni eru leiknir tveir fjórmenningsleikir (Foursome) þar sem tveir leikmenn leika gegn tveimur öðrum leikmönnum og hvort lið leikur einum bolta. Eftir hádegi eru leiknir fimm tvímenningsleikir, þar sem einn leikmaður leikur gegn öðrum leikmanni.

Til þess að ná Evrópumeistaratitli þurfa liðin að enda í einu af átta efstu sætunum í höggleiknum og vinna síðan alla þrjá leikina í riðlakeppninni.

Karlalandslið Íslands leikur á Royal St. George’s vellinum á Englandi en þar eru 19 þjóðir sem taka þátt. Keppnisvöllurinn er einn sá þekktasti en Opna mótið hefur 15 sinnum farið fram á þessum velli – síðast árið 2021. Vegna heimsfaraldurs undanfarin ár verða alls 19 þjóðir í efstu deild en engin þjóð féll úr efstu deild 2020 og 2021. Finnland, Tékkland og Eistland komust upp úr næst efstu deild árið 2021 og eru á meðal keppenda í efstu deild í ár.

Smelltu hér fyrir leikmannalista, rástíma, stöðu og úrslit.

3. keppnisdagur

Ísland mætti liði Hollands í fyrstu umferð holukeppninnar. Aron Emil Gunnarsson og Kristófer Orri Þórðarson léku í fjórmenningsleiknum sem tapaðist 3/2. Daníel Ísak Steinarsson tapaði naumlega í sinni viðureign í tvímenning, Hlynur Bergsson tapaði 6/5. Hákon Örn Magnússon sigraði 2/1 og Sigurður Bjarki Blumenstein sigraði 1/0 í sinni viðureign.

Íslands mætir liði Wales í næstu umferð og á nú aðeins möguleika á að ná 13. sætinu á þessu móti.

2. keppnisdagur

Sigurður Bjarki Blumenstein endaði í 42. sæti á 141 höggi (70-71) samtals +1.

Hákon Örn Magnússon endaði í 60. sæti á 144 höggum (76-68) samtals +4.

Hlynur Bergsson endaði í 85. sæti á 146 höggum (71-75) samtals +6.

Daníel Ísak Steinarsson endaði í 92. sæti á 148 höggum (77-71) samtals +8.

Aron Emil Gunnarsson endaði í 104. sæti á 150 höggum (74-76) samtals +10.

Kristófer Orri Þórðarson endaði í 109. sæti á 152 höggum (72-80) samtals +12.

Íslenska karlalandsliðið endaði í 16. sæti af alls 19 þjóðum eftir höggleikinn. Ísland leikur því um sæti nr. 9-16.

Spánn, Frakkland, England, Þýskaland, Danmörk, Ítalía, Svíþjóð og Írland leika um Evrópumeistaratitilinn og sæti nr. 1-8.

Um sæti 9-16 leika Holland, Finnland, Austurríki, Wales, Eistland, Sviss, Belgía og Ísland. Mótherjar Íslands í 1. umferð holukeppninnar verða Hollendingar.

Skotland, Tékkland og Portúgal leika um sæti nr. 17-19.

1. keppnisdagur

Íslenska liðið er í 16. sæti af alls 19 á +13 samtals. Danir eru efstir á -6 samtals og þar á eftir koma Finnar á -2 og Spánverjar á -1. Íslenska liðið er 11 höggum frá 8. sætinu og sæti í A-riðli.

Sigurður Bjarki Blumenstein, er í 22. sæti, á 70 höggum eða pari vallar – og lék hann best allra í íslenska liðinu á fyrsta keppnisdegi í höggleiknum.

Hlynur Bergsson er í 43. sæti og náði næst besta skora dagsins hjá íslenska liðinu eða 71 högg (+1).

Kristófer Orri Þórðarson er í 61. sæti á +2 eða 72 höggum.

Aron Emil Gunnarsson, er í 85. sæti, á +4 eða 74 höggum.

Hákon Örn Magnússon lék á +6 eða 76 höggum og er hann í 102. sæti

Daníel Ísak Steinarsson, lék á 77 höggum eða +7, og er hann í 106. sæti en skor hans taldi ekki hjá íslenska liðinu.

Danir eru ríkjandi Evrópumeistarar en Danmörk fagnaði sínum fyrsta EM titil í karlaflokki í fyrra á PGA Catalunya á Spáni. Þrír leikmenn Dana úr Evrópumeistaraliðinu eru í áfram í liðinu í ár, þeir Søren Lind, Hamish Brown, og Frederik Kjettrup.

Íslenska karlalandsliðið er þannig skipað:

Aron Emil Gunnarsson, Daníel Ísak Steinarsson, Kristófer Orri Þórðarson, Hákon Örn Magnússon, Hlynur Bergsson, Sigurður Bjarki Blumenstein, Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri GSÍ og landsliðsþjálfari.

<strong>Hákon Örn Magnússon Myndsethgolfis <strong>
<strong>Daníel Ísak Steinarsson Myndsethgolfis <strong>
<strong>Kristófer Orri Þórðarson Myndsethgolfis <strong>
<strong>Sigurður Bjarki Blumenstein Myndsethgolfis <strong>
<strong>Hlynur Bergsson Myndsethgolfis<strong>
<strong>Aron Emil Gunnarsson Myndsethgolfis<strong>

Exit mobile version