/

Deildu:

Auglýsing

Evrópumót kvennalandsliða í golfi verður haldið á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi í Garðabæ sumarið 2016. Þetta verður stærsta alþjóðlega golfmót sem haldið hefur verið á Íslandi fram til þessa. Í mótinu munu keppa fremstu áhugakylfingar kvenna í Evrópu ásamt okkar bestu konum. Búast má við um 120 keppendum frá um 20 þjóðlöndum ásamt fylgdarliði. Golfsamband Íslands og Golfklúbburinn Oddur hafa nú þegar hafið undirbúning mótsins. Frakkar báru sigur úr býtum í mótinu á síðasta ári, annað árið í röð.

„Það er ljóst að þetta er mikil viðurkenning fyrir íslenskt golf og það öfluga starf sem unnið hefur verið á Íslandi. Einnig er þetta mikil viðurkenning fyrir Urriðavöll sem hefur þótt einn jafnbesti völlur landsins undanfarin ár af öðrum völlum ólöstuðum,“ segir Þorvaldur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Odds.

Mótið fer fram 4. – 9. júlí á næsta ári sem verður til þess að Meistaramót GO verður viku síðar á ferðinni en undanfarin ár. Verkefnið er eitt það stærsta sem Golfklúbburinn Oddur hefur tekið að sér og er ljóst að þörf er á hjálp frá félagsmönnum GO við framkvæmd mótsins. Við vonum að félagsmenn taki mótinu opnum örmum og bjóði fram aðstoð sína við framkvæmdina.

Það er við hæfi að Evrópumót kvennalandsliða skuli haldið á Urriðavelli þar sem hæsta hlutfall kvenna í golfklúbbi á Íslandi er í Golfklúbbnum Oddi eða 42% á meðan að landsmeðaltal er 29%.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ