Frá vinstri: Þorsteinn Hallgrímsson, Dagbjartur, Gunnlaugur Árni, Tómas, Daníel Ísak, Aron Emil, Logi og Bjarni.
Auglýsing

Evrópumót kvenna, karla, stúlkna – og pilta hófust þriðjudaginn 9. júlí. Ísland er með lið í öllum fjórum mótunum.

Evrópumót kvenna fer fram á Spáni og karlaliðið leikur í Póllandi. Stúlknalandsliðið leikur í Svíþjóð og piltalandsliðið í Austurríki.

Öll mótin fara fram á sama tíma eða dagana 9.-13. júlí.

Kvenna -, stúlkna og piltalandsliðin leika í efstu deild en karlalandsliðið leikur í 2. deild.

Landsliðshópurinn æfðu saman í Þýskalandi í lok síðustu viku:

Efri röð frá vinstri: Ólafur Björn Loftsson, Bjarni Már Ólafsson, Baldur Gunnbjörnsson, Guðrún Jóna Nolan Þorsteinsdóttir, Andrea Bergsdóttir, Anna Júlía Ólafsdóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Eva Fanney Matthíasardóttir, Eva Kristinsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Fjóla Margrét Viðarsdóttir og Árný Árnadóttir.
Fremri röð frá vinstri: Þorsteinn Hallgrímsson, Logi Sigurðsson, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Dagbjartur Sigurbrandsson, Daníel Ísak Steinarsson, Aron Emil Gunnarsson, Tómas Eiríksson Hjaltested, Skúli Gunnar Ágústsson, Markús Marelsson, Arnar Daði Svavarsson, Guðjón Frans Halldórsson, Hjalti Kristján Hjaltason, Veigar Heiðarsson og Birgir Björn Magnússon.

Evrópumót karla 9.-13. júlí í Póllandi 🇵🇱

Smelltu hér fyrir stöðuna hjá körlunum:

Nánar um mótið hér:

Aron Emil Gunnarsson, GOS
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Daníel Ísak Steinarsson, GK
Logi Sigurðsson, GS
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR

Þjálfari: Þorsteinn Hallgrímsson
Sjúkraþjálfari: Bjarni Már Ólafsson

Belgía, Króatía, Tékkland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Litháen, Pólland, Slóvakía og Slóvenía leika í 2. deild – alls 10 þjóðir.

Fyrstu tvo keppnisdagana var leikinn höggleikur – þar sem að Ísland endaði í 4. sæti. Í dag hófst riðlakeppnin – þar sem að Ísland sigraði lið Ungverja 3-2. Á föstudaginn mætir Ísland liði Belgíu – og liðið sem sigrar leikur til úrslita, en liðin sem leika til úrslita um sigurinn tryggja sér jafnframt sæti í efstu deild EM að ári.

Úrslitin úr leikjunum gegn Ungverjum má sjá hér fyrir neðan. 

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ