Frá vinstri: Árný Lilja, Auður Bergrún, Eva, Pamela Ósk, Eva Fanney, Bryndís Eva, Fjóla Margrét og Guðrún Brá.
Auglýsing

Evrópumót kvenna, karla, stúlkna – og pilta hófust þriðjudaginn 9. júlí. Ísland er með lið í öllum fjórum mótunum.

Evrópumót kvenna fer fram á Spáni og karlaliðið leikur í Póllandi. Stúlknalandsliðið leikur í Svíþjóð og piltalandsliðið í Austurríki.

Öll mótin fara fram á sama tíma eða dagana 9.-13. júlí.

Kvenna -, stúlkna og piltalandsliðin leika í efstu deild en karlalandsliðið leikur í 2. deild.

 

Landsliðshópurinn æfðu saman í Þýskalandi í lok síðustu viku:

Efri röð frá vinstri: Ólafur Björn Loftsson, Bjarni Már Ólafsson, Baldur Gunnbjörnsson, Guðrún Jóna Nolan Þorsteinsdóttir, Andrea Bergsdóttir, Anna Júlía Ólafsdóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir, Eva Fanney Matthíasardóttir, Eva Kristinsdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Fjóla Margrét Viðarsdóttir og Árný Árnadóttir.
Fremri röð frá vinstri: Þorsteinn Hallgrímsson, Logi Sigurðsson, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Dagbjartur Sigurbrandsson, Daníel Ísak Steinarsson, Aron Emil Gunnarsson, Tómas Eiríksson Hjaltested, Skúli Gunnar Ágústsson, Markús Marelsson, Arnar Daði Svavarsson, Guðjón Frans Halldórsson, Hjalti Kristján Hjaltason, Veigar s og Birgir Björn Magnússon.

Evrópumót stúlkna 9.-13. júlí í Svíþjóð 🇸🇪 

Smelltu hér fyrir lokastöðuna í höggleiknum:

Smelltu hér fyrir stöðuna í riðlakeppninni:

Auður Bergrún Snorradóttir, GM

Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA

Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG

Eva Kristinsdóttir, GM

Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM

 

Þjálfari: Guðrún Brá Björgvinsdóttir

Sjúkraþjálfari: Árný Lilja Árnadóttir

Fyrstu tvo keppnisdagana var leikinn höggleikur – þar sem að fimm bestu skorin hjá hverju liði taldi á hverjum hring. Ísland endaði í 17. sæti í höggleiknum. 

Ísland lék gegn Eistlandi í morgun í keppni um 17.-19. sæti og þar landaði Ísland góðum sigri 3,5-1,5. 

Á laugardag leikur Ísland gegn Tyrklandi í úrslitaleik um 17. sætið – en Tyrkir sigruðu Eistland í gær og er ljóst að Eistland endar í 19. sæti. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ