Egils-Gullmótið 2016 Eimskipsmótaröðin.
Fannar Ingi Steingrímsson, GHG.
Auglýsing

Fannar Ingi Steingrímsson lék á 74 höggum í gær eða +3 á öðrum keppnisdegi á breska áhugamannamótinu fyrir kylfinga undir 18 ára aldri. Fannar Ingi, sem er 18 á kylfingur úr Golfklúbbi Hveragerðis, er samtals á +3 eftir að hafa leikið fyrsta hringinn á pari vallar. Hann endaði í 22. sæti og komst auðveldlega í holukeppnina sem hófst í dag.

Fannar mætir þar Falko Hanisch frá Þýskalandi í 1. umferð en alls leika 32 kylfingar í 1. umferð holukeppninnar.

Staðan í holukeppninni:

Mótið á sér langa sögu en fyrst var keppt árið 1921 og er R&A í Skotlandi mótshaldari. Mótið fer fram á tveimur völlum í ár, á Muirfield og The Renaissance.

Fannar Ingi lék Murfield völlinn á fyrsta keppnisdeginum en hann lék á The Renaissance á öðrum keppnisdegi mótsins.

Alls hófu 247 kylfingar keppni á þessu sterka móti.

Muirfield völlurinn í Skotlandi er einn sá þekktasti í veröldinni en Opna breska meistaramótið hefur farið fram á þeim velli alls 16 sinnum og síðast árið 2013 þegar Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson sigraði á því risamóti í fyrsta sinn á ferlinum.

The Renaissance völlurinn var opnaður árið 2008 og er í hópi 20 bestu golfvalla Skotlands samkvæmt vefsíðunni top100golfcourses.co.uk.

Mótið hófst þann 9. ágúst og því lýkur þann 14. ágúst. Það eru margir þekktir kylfingar sem hafa staðið uppi sem sigurvegarar á þessu móti. Má þar nefna Ronan Raferty (1979), Jose Maria Olazabal (1983) og Sergio Garcia (1997).

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ