/

Deildu:

Arnór Ingi Finnbjörnsson, Egill Ragnar Gunnarsson og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson.
Auglýsing

Skilafrestur umsókna í Ferðasjóð íþróttafélag rennur út á miðnætti 10. janúar 2018. Ekki verður tekið við umsóknum eftir þann tíma. Umsóknir eru sendar í gegnum rafrænt umsóknarsvæði sjóðsins sem má finna á heimasíðu ÍSÍ eða á eftirfarandi vefslóð:

https://ferdastyrkir.isi.is/

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót ársins 2017.

Til úthlutunar eru 127 milljónir króna. Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar.

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send.

Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ