Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) vekur athygli á því að umsóknum í Ferðasjóð íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2023 þarf að skila í gegnum umsóknarvef sjóðsins fyrir miðnætti 8. janúar 2024.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ.
Öll íþrótta- og ungmennafélög innan ÍSÍ hafa rétt til að sækja um styrk í sjóðinn, „vegna keppnisferða í viðurkenndum íþróttagreinum innan ÍSÍ á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót“.
Ekki er tekið við umsóknum eftir að fresturinn hefur runnið út.