Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni hófu í morgun keppni í úrtökumóti á lokastigi fyrir keppnisrétti á evrópsku mótaröð kvenna sem fram fer í Marókkó. Valdís Þóra byrjar vel og er í 25. – 34. sæti eftir fyrsta keppnisdag. Hún lék fyrsta hringinn á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari og er í góðri stöðu.
Valdís var í fuglastuði í dag og fékk alls sjö fugla en fimm skolla. Hún var jafnframt nálægt því að fara holu í höggi á 13. holu Amelkis vallarins. Valdís er þremur höggum á eftir efstu kylfingum en besta skor dagsins var 67 högg eða fimm högg undir par.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR lék fyrsta hringinn á 74 höggum eða tveimur höggum undir pari. Hún lék á Samanah vellinum í dag. Ólafía fékk þrjá fugla, þrjá skolla og einn tvöfaldan skolla. Ólafía er í 74. – 82. sæti eftir fyrsta keppnisdag og er rétt fyrir neðan niðurskurðarlínuna.
30 efstu kylfingarnir í mótinu fá fullan keppnisrétt á evrópskumótaröð kvenna á næstu leiktíð. Leiknir eru 5 hringir í mótinu og er niðurskurður að loknum fjórum hringjum. 60 efstu kylfingarnir komast í gegnum niðurskurðinn en þeir kylfingar sem hafna á meðal 60 efstu eru öruggir um takmarkaðan keppnisrétt á evrópsku mótaröðinni á næstu leiktíð.
Mótaröðin er sú næst sterkasta á eftir LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Þetta er í þriðja sinn sem Valdís Þóra fer í gegnum úrtökumótið sem atvinnukylfingur en Ólafía er að reyna í annað sinn á ferlinum.
Hér má finna frekari upplýsingar um úrtökumótið
Fylgstu með á Snapchat
Hægt er að fylgjast nánar með gangi mála hjá Valdísi Þóru í gegnum samskiptamiðilinn Snapchat. Tinna Jóhannsdóttir, stigameistari Eimskipsmótaraðarinnar 2015 í kvennaflokki, verður Valdísi til aðstoðar í Marokkó. Þær ætla að stytta okkur stundir með fregnum af gangi mála í gegnum Snapchat samfélagsmiðilinn – undir nafninu golf-is.
Það er því ekkert annað að gera en að bæta golf-is á vinalistann á Snapchat.