[dropcap]T[/dropcap]ímaritið Golf á Íslandi er komið út í fimmta sinn á þessu ári. Að venju eru efnistökin fjölbreytt.
Má þar nefna viðtöl við Íslandsmeistarana í golfi 2015, framkvæmdastjóra GSÍ og framkvæmdastjóra GR. Golfkona úr GS tók þátt í 45 mótum á árinu 2015, ungir og efnilegir kylfingar eru í sviðsljósinu. 30 ára saga karlkylfinga frá Íslandi á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina er rifjuð upp. PGA kennari gefur góð ráð í vetraræfingunum, svo eitthvað sé nefnt.
Rafræna útgáfu af Golf á Íslandi má nálgast hér fyrir neðan.