Auglýsing

Kylfingar sem skipa afreks- og framtíðarhópa Golfsambands Íslands hafa hist í æfingabúðum með reglulegu millibili í vetur. Dagskráin hefur verið fjölbreytt á æfingunum sem Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari hefur stýrt – en margir fagaðilar vinna með afrekskylfingunum á ýmsum sviðum sem tengjast golfíþróttinni.

Í mars sl. fór hópurinn m.a. í TRX líkamsæfingar hjá Elínu Sigurðardóttur. TRX æfingakerfið er þannig uppbyggt að einstaklingar vinna með eigin líkamsþyngd til þess að hámarka árangur og styrkja vöðva. Þessar æfingar styrkja vöðvahópa sem eru mikið notaðir í golfíþróttinni og þá sérstaklega vöðvahópa á kviðsvæðinu.

 Afrekshópurinn fór einnig á fyrirlestur þar sem Jóhann Ingi Gunnarsson íþróttasálfræðingur fór yfir ýmis atriði sem tengjast hugarþjálfun. Kylfingarnir fengu síðan verkefni til úrlausnar. Fjölmenni var á fundinum hjá Jóhanni Inga en foreldrum þeirra sem skipa afreks- og framtíðarhópa GSÍ var einnig boðið að hlýða á fyrirlesturinn.

[quote_box_right]Hópurinn var einnig við golfæfingar í Hraunkoti í Hafnarfirði hjá Golfklúbbnum Keili. Þar var æft í inniaðstöðunni og einnig slegið utandyra. Á æfingunum voru ýmsar mælingar framkvæmdar af landsliðsþjálfaranum, Úlfari Jónssyni.[/quote_box_right]

Kylfingar í afrekshóp GSÍ geta leitað til sérfræðinga sem skipa fagteymi GSÍ. Þar er um að ræða fagfólk sem Golfsambandið mælir með þegar afrekskylfingar þurfa á sérfræðingum að halda á sviði næringarfræði, sálfræði, íþróttameiðsla og þjálfunar. Fagteymið miðlar einnig þekkingu til afrekshóps GSÍ með fyrirlestrum og fræðsluverkefnum. Fagteymið er skipað eftirfarandi aðilum:
Bæklunarlæknir: Brynjólfur Mogensen, yfirlæknir á LSH.

Sjúkraþjálfarar: Gauti Grétarsson, Sjúkraþjálfun Reykjavíkur, Pétur Jónsson, Atlas endurhæfing.

Kírópraktor: Bergur Konráðsson, Kírópraktorstöðin.

Sálfræðingur: Jóhann Ingi Gunnarsson.

Ráðgjafi/íþróttafélagsfræðingur: Dr. Viðar Halldórsson.

IMG_9596

Nota þessa líka

Nota þessaNæringarfræðingur: Steinar B. Aðalbjörnsson, Matís.

Rúmlegar 50 kylfingar eru í afreks – og framtíðarhópum GSÍ, en stór hluti þeirra sem er í afrekshópnum er við nám í bandarískum háskólum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ