Fjórir íslenskir kylfingar hefja leik miðvikudaginn 28. febrúar á Opna spænska áhugamannamótinu. Í karlaflokki keppir Aron Snær Júlíusson úr GKG en leikið er á La Manga vellinum rétt við Murcia. Alls eru 120 keppendur og flestir af bestu áhugakylfingum heims mæta til leiks. Aron Snær er í 497 sæti heimslista áhugamanna og er í 54. sæti á styrkleikalista mótsins.
Má þar nefna Matthew Jordan frá Englandi sem er í 18. sæti heimslista áhugakylfinga en hann er með +6 í forgjöf. Keppt var í fyrsta sinn á þessu móti árið 1911. Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti og má þar nefna José María Olazábal (1983 og 1984), Darren Clark (1990), Sergio García (1998) og Gonzalo Fernández-Castaño (2003).
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili, Saga Traustadóttir úr GR og Berglind Björnsdóttir úr GR keppa á Montecastillo Barcelo vellinum. Keppendur eru um 120 og margir af bestu áhugakylfingum heims taka þátt. Þrír stigahæstu kylfingar mótsins á heimslista áhugakylfinga eru frá Svíþjóð en þær eru Frida Kinhult (+4,2) sem er í 11. sæti heimslista áhugakylfinga. Amanda Linnér (+4,6) er nr. 22 og Beatrice Wallin (+3,6) sem er í 27. sæti. Guðrún Brá er í 100. sæti heimslistans og er hún í 13. sæti á styrkleikalista mótsins.