/

Deildu:

Böðvar Bragi og Björgvin.
Auglýsing

Fjórir íslenskir kylfingar hefja leik miðvikudaginn 28. febrúar á Opna spænska áhugamannamótinu. Í karlaflokki keppir Aron Snær Júlíusson úr GKG en leikið er á La Manga vellinum rétt við Murcia. Alls eru 120 keppendur og flestir af bestu áhugakylfingum heims mæta til leiks. Aron Snær er í 497 sæti heimslista áhugamanna og er í 54. sæti á styrkleikalista mótsins.

Má þar nefna Matthew Jordan frá Englandi sem er í 18. sæti heimslista áhugakylfinga en hann er  með +6 í forgjöf. Keppt var í fyrsta sinn á þessu móti árið 1911. Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti og má þar nefna José María Olazábal (1983 og 1984), Darren Clark (1990), Sergio García (1998) og Gonzalo Fernández-Castaño (2003).

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili, Saga Traustadóttir úr GR og Berglind Björnsdóttir úr GR keppa á Montecastillo Barcelo vellinum. Keppendur eru um 120 og margir af bestu áhugakylfingum heims taka þátt. Þrír stigahæstu kylfingar mótsins á heimslista áhugakylfinga eru frá Svíþjóð en þær eru Frida Kinhult  (+4,2) sem er í 11. sæti heimslista áhugakylfinga.  Amanda Linnér (+4,6) er nr. 22 og Beatrice Wallin (+3,6) sem er í 27. sæti. Guðrún Brá er í 100. sæti heimslistans og er hún í 13. sæti á styrkleikalista mótsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ