GSÍ fjölskyldan

Forskot - afrekssjóður

Frá því að Forskot afrekssjóður var settur á laggirnar árið 2012 hefur slagkrafturinn hjá íslenskum atvinnukylfingum verið enn meiri en áður og samtakamáttur þeirra aðila sem koma að sjóðnum fleytt okkar bestu kylfingum áfram inn á nýjar brautir.  Úthlutað var í fyrsta sinn úr sjóðnum þann 14. júní 2012.

Að sjóðnum standa fyrirtækin Eimskip, Íslandsbanki, Icelandair Group, Vörður tryggingar, Bláa Lónið auk Golfsambands Íslands.

Markmiðið með stofnun Forskots afrekssjóðs árið 2012 var að búa til reynslu og þekkingarbrunn sem skili sér til kylfinga framtíðarinnar og ungir kylfingar geti litið til í sínum framtíðaráætlunum. Sjóðurinn hefur frá upphaf leitast við að gera styrkþegum auðveldara fyrir að æfa og keppa við bestu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi. Frá árinu 2012 hafa 16 kylfingar fengið styrk úr sjóðnum. 

Ríkar kröfur eru gerðar til þessara íþróttamanna um ráðstöfun styrkjanna. Ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir verkefni sín auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern kylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar.

Þeir kylfingar sem fá úthlutað úr Forskoti afrekssjóði eru sterkar fyrirmyndir. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er stór og mikilvægur þáttur í því að fá börn og unglinga til að sinna íþróttum. Því er litið á sjóðinn sem mikilvægt skref til að efla íþróttir barna og unglinga og hvetja þau til dáða.

Einn fulltrúi frá þeim sem aðild eiga að Forskoti er í stjórn sjóðsins og auk þess hefur stjórn sér til ráðgjafar fagteymi sem gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum.

Forskot, afrekssjóður, mun styðja við bakið á alls sex kylfingum á árinu 2025.

Forskot hefur frá árinu 2012 úthlutað styrkjum til afrekskylfinga og er úthlutunin í ár sú 14. í röðinni.
Að sjóðnum standa: Íslandsbanki, Icelandair, Vörður tryggingar, Bláa Lónið og Golfsamband Íslands.

Frá stofnun sjóðsins hefur markmiðið verið að gera styrkþegum auðveldara fyrir að æfa og keppa við bestu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi í golfíþróttinni.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Haraldur Franklín Magnús, Andrea Bergsdóttir,  Ragnhildur Kristinsdóttir, Gunnlaugur Árni Sveinsson og Perla Sól Sigurbrandsdóttir fá úthlutað úr sjóðnum í ár.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er fædd árið 1994 og hún gerðist atvinnukylfingur árið 2018. Guðrún Brá hefur þrívegis fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi. Guðrún Brá tryggði sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni árið 2020 eftir að hafa leikið á LET Access mótaröðinni frá árinu 2018. Guðrún Brá er með keppnisrétt á LET Access mótaröðinni á þessu tímabili.

Haraldur Franklín Magnús er fæddur árið 1991 en hann gerðist atvinnukylfingur árið 2017. Hann er með keppnisrétt á HotelPlanner Tour (áður Challenge Tour) sem er næst efsti styrkleikaflokkur hjá atvinnukylfingum í karlaflokki í Evrópu. Haraldur Franklín, varð Íslandsmeistari í golfi árið 2012.

Ragnhildur Kristinsdóttir er fædd árið 1997 og varð Íslandsmeistari í golfi 2023. Hún er á sínu þriðja ári sem atvinnukylfingur. Ragnhildur sigraði á fyrra stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina í desember. Hún er með keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á þessu tímabili.

Andrea Bergsdóttir er fædd árið 2000 og gerðist atvinnukylfingur árið 2024. Andrea hefur um árbil verið í lykilhlutverki í íslenska landsliðinu og vann stærsta sigur íslensks áhugakylfins í kvennaflokki frá upphafi árið 2024 þegar hún sigraði á háskólamóti í Mexíkó. Hún er með keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á þessu tímabili.

Gunnlaugur Árni Sveinsson er fæddur árið 2005 og leikur fyrir LSU háskólann í Bandaríkjunum. Hann sigraði á sterku háskólamóti á sinni fyrstu önn og var undir lok síðasta árs valinn á lista yfir bestu háskólakylfinganna í Bandaríkjunum. Gunnlaugur er fyrsti Íslendingurinn til að vera valinn að keppa fyrir hönd Evrópu í Bonallack Trophy. Enginn Íslendingur hefur komist jafn ofarlega á heimslista áhugakylfinga og Gunnlaugur. 

Perla Sól Sigurbrandsdóttir er fædd árið 2006 og mun keppa fyrir LSU háskólann í Bandaríkjunum frá og með haustinu. Perla var Íslandsmeistari í golfi 2022 og Evrópumeistari unglinga sama ár. Perla er fyrsti Íslendingurinn til að keppa fyrir hönd Evrópu í Junior Solheim bikarnum. 

Markmiðið með stofnun Forskots afrekssjóðs árið 2012 var að búa til reynslu og þekkingarbrunn sem skili sér til kylfinga framtíðarinnar og ungir kylfingar geti litið til í sínum framtíðaráætlunum.

Ríkar kröfur eru gerðar til þessara íþróttamanna um ráðstöfun styrkjanna. Ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir verkefni sín auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern kylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar.

Þeir kylfingar sem fá úthlutað úr Forskoti afrekssjóði eru sterkar fyrirmyndir. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er stór og mikilvægur þáttur í því að fá börn og unglinga til að sinna íþróttum. Því er litið á sjóðinn sem mikilvægt skref til að efla íþróttir barna og unglinga og hvetja þau til dáða.

Einn fulltrúi frá þeim sem aðild eiga að Forskoti er í stjórn sjóðsins og auk þess hefur stjórn sér til ráðgjafar fagteymi sem gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum.

Nánari upplýsingar: 

Brynjar Eldon Geirsson – framkvæmdastjóri GSÍ, Netfang: brynjar@golf.is 

Ólafur Björn Loftsson – afreksstjóri GSÍ, Netfang: olafur@golf.is 

Forskot - úthlutanir frá upphafi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Ragnhildur Kristinsdóttir
Andrea Bergsdóttir
Perla Sól Sigurbrandsdóttir
Gunnlaugur Árni Sveinsson
Haraldur Franklín Magnús

  • Axel Bóasson.
  • Bjarki Pétursson.
  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
  • Haraldur Franklín Magnús.
  • Ragnhildur Kristinsdóttir. 
  • Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
  • Haraldur Franklín Magnús.
  • Axel Bóasson.
  • Ragnhildur Kristinsdóttir. 
  • Bjarki Pétusson.
  • Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
  • Haraldur Franklín Magnús.
  • Axel Bóasson.
  • Aron Snær Júlíusson.
  • Bjarki Pétursson.
  • Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
  • Haraldur Franklín Magnús.
  • Andri Þór Björnsson.

2020

  • Bjarki Pétursson. 
  • Guðmundur Ágúst Kristjánsson. 
  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
  • Haraldur Franklín Magnús. 
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
  • Valdís Þóra Jónsdóttir. 

2019

  • Axel Bóasson.
  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
  • Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
  • Haraldur Franklín Magnús.
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
  • Valdís Þóra Jónsdóttir.

2018

  • Andri Þór Björnsson.
  • Axel Bóasson.
  • Birgir Leifur Hafþórsson.
  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir.
  • Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
  • Haraldur Franklín Magnús.
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
  • Valdís Þóra Jónsdóttir.

2017

  • Andri Þór Björnsson.
  • Axel Bóasson.
  • Birgir Leifur Hafþórsson.
  • Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
  • Haraldur Franklín Magnús.
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
  • Valdís Þóra Jónsdóttir.

2016

  • Axel Bóasson.
  • Birgir Leifur Hafþórsson.
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
  • Valdís Þóra Jónsdóttir.
  • Þórður Rafn Gissurarson

2015

  • Axel Bóasson.
  • Birgir Leifur Hafþórsson.
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
  • Ólafur Björn Loftsson.
  • Valdís Þóra Jónsdóttir.
  • Þórður Rafn Gissurarson.

2014

  • Axel Bóasson.
  • Birgir Leifur Hafþórsson.
  • Kristján Þór Einarsson.
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
  • Ólafur Björn Loftsson.
  • Valdís Þóra Jónsdóttir

2013

  • Axel Bóasson.
  • Birgir Leifur Hafþórsson.
  • Einar Haukur Óskarsson.
  • Ólafur Björn Loftsson.
  • Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
  • Þórður Rafn Gissurarson.

2012

  • Birgir Leifur Hafþórsson.
  • Ólafur Björn Loftsson.
  • Stefán Már Stefánsson.
  • Tinna Jóhannsdóttir.
  • Þórður Rafn Gissurarson.
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ