Auglýsing

Nýlega lauk úthlutun úr Forskoti afrekssjóði kylfinga vegna ársins 2020. Alls fá 6 atvinnukylfingar styrk úr sjóðnum á árinu 2020 og er þetta 9 árið í röð þar sem íslenskir afrekskylfingar fá úthlutað úr sjóðnum. Forskot afrekssjóður var stofnaður um mitt ár 2012 og þann 14. júní það sama ár var í fyrsta sinn úthlutað úr sjóðnum. Að sjóðnum standa fyrirtækin Eimskip, Valitor, Íslandsbanki, Icelandair Group, Vörður tryggingar, Bláa Lónið auk Golfsambands Íslands.

Þeir 6 leikmenn sem hlutu styrki fyrir árið 2020

Bjarki Pétursson er fæddur 1994.  Bjarki gerðist atvinnumaður á 2019. Hannkomst inn á lokastig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina  2019 og náði að tryggja sérþátttökurétt á Nordic Tour á árinu 2020.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er fæddur árið 1992. Guðmundur gerðistatvinnukylfingur árið 2017 eftir að hafa náð góðum árangri í bandarískaháskólagolfinu og er með fullan þátttökurétt á Áskorendamótaröð Evrópu á árinu 2020 eftir aðhafa sigrað þríveigis á síðasta ári á Nordic Tour mótaröðinni.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, er fædd árið 1994. Guðrún er nú með keppnisrétt á Evrópumótaröðinni 2020. Guðrún hefur leikið til þessa leikið á LET-Access series en náði með góðri spilamennsku að tryggja sér rétt á Evrópumótaröðinni í úrtökumóti fyrr í mánuðinum.

Haraldur Franklín Magnús er fæddur árið 1991. Haraldur gerðist atvinnukylfingurárið 2017 og lék á Nordic Tour mótaröðinni þar sem hann endaði í fjórða sæti í fyrra ogmeð þeim árangri tryggði hann sér fullan þátttökurétt á Áskorendamótaröð Evrópu.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, er fædd árið 1992. Ólafía er með takmarkaðankeppnisrétt á LPGA mótaröðinni, sterkustu atvinnumótaröð veraldar á þessutímabili. Ólafía er með keppnisrétt á Symetra mótaröðinni í Bandaríkjunum semer í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða þar í landi.

Valdís Þóra Jónsdóttir, er fædd árið 1989, leikur hún á sterkustuatvinnumótaröð Evrópu, LET Evrópumótaröðinni. Þetta er fjórða tímabil Valdísará þessari mótaröð og er þar með nánast ótakmarkaðan keppnisrétt.

Frá því að Forskot afrekssjóður var stofnaður hefur slagkrafturinn hjá íslenskum atvinnukylfingum verið meiri en áður og samtakamáttur þeirra aðila sem koma að sjóðnum fleytt okkar bestu kylfingum inn á nýjar brautir. Ríkar kröfur eru gerðar til styrkþega um ráðstöfun styrkja og ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir öll verkefni auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern afrekskylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar og sjóðsins. Þeir kylfingar sem fá úthlutað eiga það sameiginlegt að vera sterkar fyrirmyndir og afreksfólk í fremstu röð. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er mikilvægur þáttur í því að hvetja börn og unglinga til að sinna íþróttum og þannig stuðla að forvörnum og lýðheilsu.

Fyrirtækin sem koma að sjóðnum eru virkilega ánægð hvernig Íslenskt afreksgolf hefur þróast í stöðugri framför frá stofnun sjóðsins. Sjóðurinn hefur frá upphafi haft það að markmiði að styðja við þá atvinnukylfinga sem stefna á að komast í fremstu röð í íþróttinni og eru að stíga sín fyrstu skref. Einn fulltrúi frá hverju fyrirtæki sem aðild eiga að Forskoti situr í stjórn sjóðsins en auk þess hefur stjórn sjóðsins sér til ráðgjafar fagteymi sem leggur fram tillögur  um úthlutanir úr sjóðnum á ári hverju. 

Stjórn Forskots óskar öllum afrekskylfingum góðs gengis á árinu.
www.forskot.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ