Auglýsing

Nýverið var úthlutað úr Forskoti afrekssjóði kylfinga en alls átta atvinnukylfingar fá styrk úr sjóðnum að þessu sinni.

Kylfingarnir eru:

Andri Þór Björnsson (GR)
Axel Bóasson (GK)
Birgir Leifur Hafþórsson (GKG)
Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK).
Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR)
Haraldur Franklín Magnús (GR) 
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR)
Valdís Þóra Jónsdóttir (GL)

Þetta er í sjöunda sinn sem íslenskir kylfingar fá úthlutað úr Forskoti afrekssjóði sem var stofnaður árið 2012.

Aðstandendur sjóðsins eru ánægðir með að íslenskt afreksgolf hefur verið í stöðugri framför frá stofnun hans. Árið 2018 eru tveir íslenskir atvinnukylfingar, leika á sterkustu mótaröðunum. Þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir. Þetta er annað árið í röð þar sem þær eru á sterkustu atvinnumótaröðunum. Ólafía er með keppnisrétt á LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum og Valdís á LET Evrópumótaröðinni.

Birgir Leifur Hafþórsson og Axel Bóasson eru báðir með keppnisrétt á næst sterkustu mótaröð Evrópu, Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour). Er þetta í fyrsta sinn sem tveir íslenskir karlar eru með keppnisrétt á þessari mótaröð á sama tíma.

Haraldur Franklín, Andri Þór og Guðmundur Ágúst keppa allir á Nordic Tour atvinnumótaröðinni og Guðrún Brá mun keppa á LET Access atvinnumótaröðinni á þessu tímabili.

Stofnendur Forskots afrekssjóðs eru Eimskip, Valitor, Golfsamband Íslands, Íslandsbanki og Icelandair Group. Vörður tryggingar bættist í hópinn árið 2016 og Bláa Lónið árið 2017.

Sjóðurinn hefur frá upphafi haft það að markmiði að styðja við þá kylfinga, atvinnumenn sem og áhugamenn, sem stefna á að komast í fremstu röð í heiminum í golfíþróttinni.

Um sjóðinn

Forskot afrekssjóður var stofnaður um mitt ár 2012 og þann 14. júní sama ár var í fyrsta sinn úthlutað úr sjóðnum.

Markmiðið með stofnun Forskots afrekssjóðs árið 2012 var að búa til reynslu og þekkingarbrunn sem skili sér til kylfinga framtíðarinnar og ungir kylfingar geti litið til í sínum framtíðaráætlunum. Sjóðurinn hefur frá upphafi beint sjónum sínum að fimm kylfingum á hverjum tíma og leitast við að gera þeim auðveldara fyrir að æfa og keppa við bestu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi.

Frá því að Forskot afrekssjóður var settur á laggirnar hefur slagkrafturinn hjá íslenskum atvinnukylfingum verið enn meiri en áður og samtakamáttur þeirra aðila sem koma að sjóðnum fleytt okkar bestu kylfingum áfram inn á nýjar brautir.

Ríkar kröfur eru gerðar til þessara íþróttamanna um ráðstöfun styrkjanna. Ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir verkefni sín auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern kylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar.

Þeir kylfingar sem fá úthlutað úr Forskoti afrekssjóði eru sterkar fyrirmyndir. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er stór og mikilvægur þáttur í því að fá börn og unglinga til að sinna íþróttum. Því er litið á sjóðinn sem mikilvægt skref til að efla íþróttir barna og unglinga og hvetja þau til dáða.

Einn fulltrúi frá þeim sem aðild eiga að Forskoti er í stjórn sjóðsins og auk þess hefur stjórn sér til ráðgjafar fagteymi sem gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum.

Nánari upplýsingar á forskot.is

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ