Auglýsing

Heimsleikar Special Olympics hófust um miðjan mars en stór hópur Íslendinga er í Abu Dhabi þar sem keppnin fer fram. Alls taka 192 þjóðir þátt og um 150 Íslendingar eru í Abu Dhabi í tengslum við heimsleikana, keppendur og aðstandendur þeirra.

Þrír íslenskir kylfingar tóku þátt í golfkeppninni á Special Olympics og stóðu þeir sig gríðarlega vel. Keppni í golfi lauk í dag en keppnisdagarnar voru alls fjórir.

Elín Fanney Ólafsdóttir, Ásmundur Þór Ásmundsson og Pálmi Þór Pálmason kepptu fyrir Íslands hönd og stóðu sig með prýði eins og áður segir. Ásmundur Þór gerði sér lítið fyrir og nældi í silfurverðlaun. Elín Fanney og Pálmi Þór voru hársbreidd frá því að komast á verðlaunapall. Sannarlega glæsilegur árangur.

Elín og Pálmi kepptu í hópi 5 þar sem leiknir voru fjórir 18 holu keppnishringir. Ásmundur Þór keppti í hópi 5 þar sem leiknar voru 9 holur á fjórum keppnisdögum.

Aðstæður voru krefjandi þrátt fyrir að hitastigið væri á bilinu 25-27 gráður. Vindurinn lék stórt hlutverk á keppnisvellinum og sandfok var annað slagið í mestu hviðunum

Frá vinstri: Karl Óma Karlsson þjálfari, Elín, Ásmundur og Pálmi. 

Pálmi Þór sýndi miklar framfarir á mótinu og bætti sig verulega á þremur síðustu hringjunum. Pálmi endaði í 4. æsti en hann lék hringina fjóra á (90-86-81-87) höggum.

Elín Fanney varð fyrir því óláni að snúa sig illa á ökkla eftir þriðja hringinn. Hún sýndi því mikla hörku á lokahringnum þar sem hún lét meiðslin ekki hafa áhrif á sig. Elín endaði í fjórða sæti en hún lék hringina fjóra á (100-117-118-109) höggum.

Ásmundur Þór gerði sér lítið fyrir og fékk silfurverðlaun í sínum flokki. Hann lék hringina fjóra á (55-65-65-61) höggum.

 

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ