Axel Bóasson endaði í þriðja sæti á Jyske Bank PGA Championship sem lauk í dag í Silkeborg. Andri Þór Björnsson lék frábært golf á lokahringum þar sem hann fékk átta fugla og endaði hann í áttunda sæti. Haraldur Franklín Magnús endaði í 19. sæti.
Mótið er hlut af Nordic League atvinnumótaröðinni sem er í þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.
Axel sem keppir fyrir Keili var í öðru sæti fyrir lokahringinn en hann lék á 71 höggi í dag eða -1. Samtals lék hann á -8 (73-64-71).
Andri Þór Björnsson úr GR átti frábæran lokahring þar sem hann lék á -7 eða 65 höggum. Samtals var hann á -4 sem skilaði honum í áttunda sæti, (73-74-68).
Haraldur Franklín Magnús úr GR lék samtals á pari vallar á þremur hringjum og endaði í 19. sæti, (73-72-71).