Auglýsing

Titleist Unglingaeinvígið fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ föstudaginn 13. september.

Þetta er 15. skiptið sem Unglingaeinvígið er haldið, en mótið er á vegum Golfklúbbs Mosfellsbæjar.

Titleist Unglingaeinvígið er boðsmót þar sem leikmenn vinna sér inn þátttökurétt með góðum árangri á Unglingamótaröð GSÍ auk þess sem klúbbmeisturum GM er boðin þátttaka.

Þrír keppendur komust áfram úr hverjum flokki í lokaeinvígið, en aðstæður voru mjög krefjandi. Hvass vindur og úrkoma af og til.

Mótið var leikið eftir shoot out fyrirkomulagi þar sem 10 leikmenn hófu leik og datt einn leikmaður út á hverri holu þar til Tómas Eiríksson Hjaltested stóð uppi sem sigurvegari.

Tómas lék stórkostlegt golf á lokaholunum en hann fékk fugl á fjórar síðustu holurnar. Á lokaholunni hafði Tómas betur gegn félaga sínum úr GR, Dagbjarti Sigurbrandssyni, en hann hafði titil að verja á mótinu.

Lokastaðan í Titleist Unglingaeinvíginu 2019:

  1. Tómas Eiríksson Hjaltested GR
  2. Dagbjartur Sigurbrandsson GR
  3. Aron Ingi Hákonarson GM
  4. Perla Sól Sigurbrandsóttir GR
  5. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir GR
  6. Helga Signý Pálsdóttir GR
  7. Finnur Gauti Vilhelmsson GR
  8. Guðjón Frans Halldórsson GKG
  9. Kristófer Karl Karlsson GM
  10. Böðvar Bragi Pálsson GR

Sigurvegarar mótsins frá upphafi eru:

2005 – Sveinn Ísleifsson

2006 – Guðni Fannar Carrico

2007 – Andri Þór Björnsson

2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson

2009 – Andri Már Óskarsson

2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir

2011 – Ragnar Már Garðarson

2012 – Aron Snær Júlíusson

2013 – Ingvar Andri Magnússon

2014 – Ingvar Andri Magnússon

2015 – Björn Óskar Guðjónsson

2016 – Henning Darri Þórðarson

2017 – Ragnar Már Ríkarðsson

2018 – Dagbjartur Sigurbrandsson

2019 – Tómas Eiríksson Hjaltested

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ