Á næstunni stendur íþróttahreyfingunni fyrir fræðsluviðburðum.
Laugardagur 27. ágúst 11:30-12:30 á vegum KSÍ.
Æfingar og keppni kvenkyns leikmanna, með tilliti til tíðarhrings (Understanding Performance and the Menstrual Cycle). Fyrirlesari er Clare Conlon, starfsmaður írska knattspyrnusambandsins. Þessi fyrirlestur á erindi við íþróttakonur og þjálfara kvenna.
Skráning fer fram hér: Erindið verður flutt í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli, 3ju hæð. Ekkert streymi frá viðburðinum.
Mánudagur 29. ágúst Hádegisfundur í stofu M209 í HR kl. 11:50 á vegum ÍSÍ og HR.
Goal Setting: Research to Application. Fyrirlesarar verða hinir virtu íþróttasálfræðingar Dr.Robert S. Weinberg og Dr. Daniel Gould. Í fyrrihluta fyrirlestursins verður fjallað um rannsóknir á mikilvægi markmiðasetningar í íþróttum, og ólíkar gerðir markmiðasetninga. Í seinni hlutanum verður áhersla lögð á grunnreglur markmiðasetningar á æfingum og einstaklingsmiðaða nálgun á að setja sér markmið. Frítt verður inn og skráningar er ekki krafist. Ekkert streymi.
Miðvikudagur 31. ágúst í stofu M209 í HR kl.12-13.15 í stofu á vegum ÍSÍ og HR.
Örráðstefna um þjálfaramenntun. Frítt inn og engin skráning. Streymi.
12:00 | Þjálfaramenntun ÍSÍ | Viðar Sigurjónsson ÍSÍ |
12:15 | Fjarnám – kostir og gallar | Ingi Þór Einarsson HR |
12:30 | Gerð fræðsluefnis – samvinna sérsambanda | Helga Svana Ólafsdóttir FSÍ |
12:45 | Sérsambönd – háskólar – erlendar kröfur | Sveinn Þorgeirsson HR/fh. HSÍ |
13:00 | Umræður – næstu skref? | |
13:15 | Ráðstefnulok |
Laugardagur 3. september kl. 10 í höfuðstöðvum KSÍ.
Dr. Martin Halle, einn fremsti íþróttalæknir og hjartasérfræðingur Evrópu mun halda erindi á boðsfundi þann 3. september 2022 í höfuðustöðvum KSÍ. Um er að ræða fræðslufund um hjartatengd vandamál hjá íþróttafólki