Frétt af heimasíðu Golfklúbbs Mosfellsbæjar.
Í dag, þann 1. apríl kl. 16.00, verða tímamót í starfsemi Golfklúbbs Mosfellsbæjar þegar tekin verður fyrsta skóflustungan að nýrri íþróttamiðstöð við Hlíðavöll. Markar þetta upphaf framkvæmda við húsið en þá verður einnig skrifað verður undir saminga við jarðverktaka. Á mánudaginn verða síðan opnuð tilboð í uppsteypu hússins sem auglýst var um síðustu helgi.
Skóflustunguna munu börn og ungmenni í GM annast undir handleiðslu Sigurpáls Geirs Sveinsonar íþróttastjóra GM. Þegar miðstöðin verður fullbúin mun verða til fyrsta flokks aðstaða fyrir börn og ungmenni í Mosfellsbæ til að æfa sína íþrótt á heilsársgrunni í bæjarfélaginu.
Að athöfn lokinni verður boðið upp á kaffisopa í vélaskemmu GM á Blikastaðanesi.