Tilkynning frá ÍSÍ til aðildarfélaga:
Nú hefur frumvarp til laga um greiðslur til lögaðila ÍSÍ vegna launa- og verktakagreiðslna á tímum kórónufaraldurs verið samþykkt á Alþingi og eru það gleðileg tíðindi fyrir íþróttahreyfinguna.
Um helgina verður boðað til kynningarfundar fyrir íþróttahreyfinguna, á vegum stjórnvalda, Vinnumálastofnunar og ÍSÍ, þar sem farið verður vel yfir fyrirkomulag vegna umsókna um styrki, samkvæmt lögunum. Áætlað er að fundurinn verði í byrjun næstu viku.
Með kveðju,
ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS
Líney Rut Halldórsdóttir