Ágætu eldri kylfingar. Það verður mikið um að vera hjá eldri kylfingum í sumar. Nú fer að styttast í fyrstu mót Öldungamótaraðar LEK. Hið vinsæla Ping-mót verður haldið hjá Keili á Hvaleyrarvelli laugardaginn 28. maí og hafa nú þegar vel yfir 100 þátttakendur skráð sig í mótið. Daginn eftir þann 29. maí verður annað mót í mótaröðinni sem verður hjá GHR á Strandarvelli á Hellu. Til viðbótar við að vera hluti af Öldungamótaröðinni eru bæði þessi mót til viðmiðunar við val á landsliðum LEK árið 2017.
Alla mótaskrá fyrir eldri kylfinga má sjá á heimasíðu LEK undir golf.is og eru kylfingar hvattir til þess að kynna sér hana og skrá sig tímanlega í mótin.