Gísli Sveinbergsson, úr Keili, er í 4. – 6. sæti fyrir lokadaginn á Orange Bowl Championship, sterku áhugamannamóti í golfi fyrir 18 ára og yngri. Gísli lék þriðja hringinn á Miami í dag á 72 höggum sem er högg yfir pari vallar.
Gísli lék frábærlega í gær á 67 höggum en var á 73 fyrsta daginn. Hann er samtals á höggi undir pari og einungis tveimur höggum á eftir efstu mönnum.
Gísli fékk þátttökurétt í mótinu eftir að hafa unnið Duke of York á Bretlandseyjum í sumar.