Kylfingurinn Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði sigraði á háskólamóti í Bandaríkjunum sem lauk 30. apríl. Gísli lék á átta höggum undir pari (68-70-71 -71) á MAC meistaramótinu sem fram fór á Virtues golfvellinum í Nashport í Ohio.
Gísli sigraði með tveggja högga mun en hann keppir fyrir Kent háskólaliðið sem stóð einnig uppi sem sigurvegari í keppni níu skólaliða. Kent liðið sigraði með 25 högga mun.
Bjarki Pétursson, sem leikur einnig fyrir Kent State, lék hringina fjóra á 12 höggum yfir pari og endaði í 19. sæti í einstaklingskeppninni. Bjarki hefur líkt og Gísli leikið frábært golf á tímabilinu en þeir eru hluti af einu besta golfliði Bandaríkjanna.
Næsta mót hjá Gísla og Bjarka er 15.-17. maí þegar þeir keppa á svæðismóti.