Auglýsing

Góðgerðargolfmót Ólafíu Þórunnar og KPMG til styrktar Umhyggju – félagi langveikra barna, tókst mjög vel. Mótið var haldið á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili miðvikudaginn 18. júlí.

Góð stemming meðal þátttakenda og fjölmörg fyrirtæki lögðu hönd á plóginn. Alls tóku 52 kylfingar þátt og skiptust þeir á að leika með LPGA kylfingum og íslenskum afrekskylfingum.

Fjórir LPGA kylfingar komu til landsins til að taka þátt í mótinu þær Alexandra Jane Newell, Allison Emrey, Cheyenne Woods and Madeleine Sheils auk Ólafíu Þórunnar. Með þessu góðgerðarmóti söfnuðust þrjár milljónir króna til handa Umhyggju.

„Umhyggja styrkir fjárhagslega og styður með ýmsum hætti við fjölskyldur langveikra barna auk þess sem félagsmenn Umhyggju hafa til afnota tvö orlofshús sem eru sérútbúin sjúkrarúmum. Þá býður Umhyggja félagsmönnum upp á sálfræðiþjónustu, þeim að kostnaðarlausu. Það er aðeins með velvild og stuðningi einstaklinga og fyrirtækja í landinu sem hægt er að halda starfinu áfram og þökkum við KPMG og Ólafíu Þórunni kærlega fyrir að standa að þessu góðgerðarmóti,“ segir Regína Lilja Magnúsdóttir, formaður Umhyggju.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ