Birgir Leifur Hafþórsson.
Auglýsing

Birgir Leifur Hafþórsson endaði í 5.–9. sæti á Bravo Tours Open sem fram fór fram á Rømø vellinum rétt við bæinn Tønder syðst á Jótlandi. Ólafur Björn Loftsson, sem er úr GKG líkt og Birgir, endaði í 11.–13. sæti.

Birgir lék lokahringinn á pari vallar og lék hringina þrjá á +2 samtals (79-67-72). Ólafur Björn lék á +4 samtals (73-76-71) en hann lék á einu höggi undir pari í dag á lokahringnum.

Mótið er hluti af Nordic Golf League, eða ECCO atvinnumótaröðinni. Lokastaðan:

Daniel Lökke frá Danmörku stóð uppi sem sigurvegari á -7 samtals en aðeins tveir kylfingar léku undir pari samtals á þessu móti.

Þetta er þriðja mótið sem Ólafur Björn tekur þátt í á þessu tímabili en hann endaði í 41. og 27. sæti á fyrstu tveimur mótunum sem fram fóru á Spáni. Ólafur er með fullan keppnisrétt á þessari mótaröð. Þetta er því besti árangur hans á mótaröðinni á þessu tímabili.

Birgir Leifur, sem er Íslandsmeistari í höggleik 2014, er að leika á sínu fyrsta móti á þessu tímabili en hann er með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu. Birgir mun leika á nokkrum mótum á ECCO mótaröðinni á þessu tímabili en hann leggur alla áherslu á Áskorendamótaröðina.

Nordic Golf League / ECCO mótaröðin er í hópi atvinnudeilda sem eru í þriðju deild atvinnumótaraða í Evrópu. Það er að miklu að keppa þar sem að fimm stigahæstu kylfingarnir í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni á næsta tímabili. Mótaröðin er samvinnuverkefni atvinnumótaraða í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.

olafur_bjorn_loftsson

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ