Undanfarna áratugi hefur Golfsamband Íslands staðið að útgáfu tímaritsins Golf á Ísland sem dreift hefur verið til félagsmanna í GSÍ.
1. tbl. Golf á Íslandi 2016, sem kom út í dag, er í fyrsta sinn dreift í rúmlega 90.000 eintökum inn á flest heimili landsins í sérstöku dagblaðssniði.
Það er von okkar í golfhreyfingunni að lestur blaðsins muni koma til með að gefa sem flestum lesendum áhugaverða innsýn í starf hreyfingarinnar og vonandi vekja upp forvitni og áhuga á íþróttinni.
Hægt er að lesa PDF útgáfu Golf á Íslandi með því að smella á myndina hér fyrir neðan.