Auglýsing

Golfklúbbur Reykjavíkur í samstarfi við N1 heldur Golf14 mót dagana 7.-8. september á Korpúlfsstaðavelli.

Opið er fyrir skráningu – smelltu hér til að skrá þig.

Flokkur 13-14 ára í Golf 14 leikur höggleik án forgjafar dagana 7. og 8. september – alls 36 holur og verða leiknar 18 holur Landið/Landið báða dagana.

Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kk er 30 og ​​hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kvk er 36.

Keppt er samkvæmt gildandi móta- og keppendareglum GSÍ.

Flokkur 12 ára og yngri í Golf 14 leika 9 holur á Landinu, laugardag og sunnudag.

Að hring loknum á laugardegi verður boðið upp á hamborgaveislu fyrir keppendur.

Æfingahringir verða á föstudegi frá kl.15-18 og er hægt að bóka rástíma með því að hringja í síma 585-0203.

Allir keppendur fá teiggjöf, drykk og orkustykki með hverjum hring. Keppendur fá fría bolta í Básum báða keppnisdagana, Básar verða opnir frá kl. 6:00 fyrir keppendur.

Golf14 er hugsað sem fyrsta skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga. Mótið er ekki stigamót og en mótið gildir til forgjafar.

Áherslan í Golf 14 er að læra leikinn og mismunandi leikform hans og er aðal markmiðið að hafa gaman og njóta góðra stunda á golfvellinum.

Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar ungmenna eru hvattir til að mæta og taka virkan þátt í að gera mótið sem skemmtilegt fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum mótin. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ